Verðandi Mjóna
02.05.2006 11:30:31 / therhs

Halló allir saman

Stelpur og átaksfélagar......allir saman nú....ég er búin að sjá fjölda heimsókna inná þessa síðu en enginn virðist halda áfram á nýju síðuna mína sem er svo leiðinlegt......

Mig langar að heyra komment og peppupp frá ykkur öllum það er auðvitað það sem maður er að sækjast eftir þegar maður er að halda uppi bloggsíðu.....

Endilega ekki hætta að heimsækja mig þó svo það sé annar linkur á síðuna hjá mér......... www.verdandi.bloggar.is ..................


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 09:52:16 / therhs

Gæti ekki gengið betur

Ég er ekkert smá ánægð með árangurinnaf þessu prógrammi, mig finnst þetta algjör snilld og er ég að reyna smita þessari töfralausn út frá mér.....get alveg trúað því að vera orðin nokkuð pirrandi.......ég bara á ekki til orð yfir þessu öllu saman.......við systurnar náðum allavega einum með okkur í viðbót á DDV og er það hún móðir okkar og vonadi nær hún að standa sig vel á þessu, hún og pabbi eru farin í keppni, hann vill vera á Herbalife.......náðum ekki að smita hann.....hann kannski skiptir um skoðun ef mamma vinnur keppnina, þettta verður spennandi að sjá:lol:

Stelpur takk fyrir öll kommentin mig finnst þetta það besta við að blogga......sjá að ég hef stuðning frá fólki í sömu stöðu og ég........ÞIÐ ERUÐ EKKERT NEMA ÆÐI:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 21:19:19 / therhs

Náði 95 kílóa markmiðiunu og vantar bara 400gr í 10 kílóamúrinn

Víii framar öllum vonum, ég náði 1,3 kíló fór reyndar úr peysunni en var hún líka extra þung þess vikuna ogvildi ég ná 95 kílóunum:lol::lol:......en ég náði 500gr meira en það.......voða sátt:haha::haha::haha:


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 12:15:03 / therhs

Viktun í dag

Jæja komið að því vikulega.....ég er nú ekkert alltof bjartsýn....ég hef samt alveg verið að borða rétt en ég hef verið að prufa að fara á viktina hjá systir minni og hefur nú ekki verið mikill munur þar....en það er bara sjá til.....ef ég er ógeðslega heppin.....sem virðist vera að ég sé ekki þá næ ég kannski 10 kíló múrnum.....efast þó um það....en annað eins hefur nú gerst......ég býst þó við að vera undir kílói. Ég veðja á 800gr.....má samt ekki pæla of mikið í þessi. Þetta verður spennandi....úuuu:S

P.S. hugsanlega næ ég fyrsta markmiðinu mínu sem er 95 kíló......:haha::haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 14:39:21 / therhs

Áfram Silvía Nótt

Mjög ánægð með að "Til hamingju Ísland" hafi komist áfram í söngvakeppni, var þó ekki að horfa á hana í gær þar sem ég var stödd í þjóðleikhúsinu, ég pantaði og borgaði (hélt ég) á sýningu en það fór víst eitthvað úr skorðum, pöntunin var greinilega ekki tekin rétt niður eða bara eitthver miskilningur í gangi en því miður fyrir Þjóðleikhúsið og okkur þá fékk ég bara að heyra það:klikk:.....töluðu til mín eins og ég væri að ljúga, sögðust ekki getað hjálpað okkur en samt gátu þær það seinna......þessi framkoma sem ég fékk þarna í miðasölunni var til háborinnar skammar og loksins þegar við fengum að kaupa miða þá var 15 mín liðnar af sýningunni.....og frá því að við komum 10 fyrir átta og þar til 15mín yfir voru þær að rengja það sem ég var að segja........Keyptum við þó miðan en þetta kom okkur bara í vont skap og var ekkert gaman á sýningunni, sú sem kom með mér hafði lent í þessu í Borgarleikhúsinu og voru þau ekkert nema viljinn, hún fékk önnur sæti....(þó mikið verri) en fékk helmings afslátt af verðinu og var tilbúnir drykkir fyrir allt og allt sem þau vildu í hléinu......svona á þetta að vera skiptir engu máli hver gerir mistök....ekki viltu missa kúnna....eða hélt ég að leikhúsin væru að reyna að draga að sér fólk...það er kannksi misskilningur.

En allavega um helgina þá hefur hún verið mjög fín......borðaði einum kross of mikið af fitu í gær (algjörlega óvart) og í fyrsta skipið síðan ég byrjaði þá gleymdi ég að klára að drekka vatnið, þó hefur verið mikil löngun í eitthvað að borða þessa helgi...átt frekar erfitt að líta framhjá því en reyndi að gera bara eitthvað DDV vænt til þess að ná þessari þörf niðu....:$


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 14:40:30 / therhs

Ég hef verið klukkuð

4 störf sem ég hef unnið um ævina:

  1. Unglingavinnan
  2. Þvottahúsi (brjóta saman)
  3. Sjúkrahúsi (aðhlynning)
  4. Verkfræðistofu (tækniteiknun)

 

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  1. Fried green tomatos
  2. Bridget jones 1 og 2 
  3. 40 year old virgin 
  4. Notebook

4 staðir sem ég hef búið á:

  1. Stykkishólmur
  2. Reykjavík
  3. Odense 
  4. Barcelona

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  1. Desperate housewifes
  2. Lost
  3. C.S.I.
  4. Friends  

4 síður sem ég skoða daglega, fyrir utan blogg:

  1. mbl.is
  2. spamadur.is 
  3. google.com
  4. visir.is   

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  1. Krakow 
  2. Ibiza 
  3. London 
  4. Malaga 

4 matarkyns sem ég held uppá:

  1. kjúkling
  2. kartöflur í ofni
  3. grafinn lax með graflaxasósu 
  4.  

    bland í poka

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:

 

  1. á sólarströnd 
  2. safarí í afríku
  3. heima 
  4. í andlitsbaði....er á leiðinni eftir 45 mín :)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 09:21:54 / therhs

43 dagar í átaki

Jæja 43 dagar, 8,3 kíló ~ 0,2 kíló á dag það er nú ágætt myndi ég kalla og 83 dagar síðan ég hætti að reykja.....og ekki tekið smók síðan.

Eitthvernvegin hefur mér algjörlega tekist að halda mig við þennan kúr, ég hef einu sinni svindlað smá og það var flís af kökusneið í afmæli systir minnar og var það algjörlega meðvitað svindl.

Ég er búin að vera mjög kvefuð í gær og í dag og næ ég varla andanum.....en svona er þetta bara.....sátt við þetta svona efég verð ekki veik líka......

Svo er ég að fara í lúxusandlitsbaðið á eftir....get ekki beðið.

Ætlaði að koma með matseðilinn í gær en bara nenni ekki að skrifa það........en langar bara að segja að það var 100% ddv og 1 extra kross


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 10:42:02 / therhs

Með hor í nös.....

Vaknaði í nótt með þessar svaka stíflur......og ekkert nefsprey og klósett pappírinn búinn...8| Er eitthvað ægilega slöpp....vonandi verð ég ekki veik.....væri alls ekki sátt við það að vera veik......buhhhuuuu......

Svo pantaði ég mér miða á Túskildingsóperuna á laugardaginn og á morgun á ég pantaðan tíma í lúxusandlitsbaði.........fékk svo að heyra í gær að ég ætti annan miða á þetta leikrit með fjölskyldunni....en sem betur fer er ekki búið að borga þann miða:o

Er alveg búin að vera 100% í matarræðinu......mjög sátt við það....ætla samt að fara að geyma eitthvað extra til þess að smakka þessa DDV köku sem ég á í frystir:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 09:08:35 / therhs

Lífið heldur áfram og nú 600gr léttari

Jæja ég ætla rétt að vona að þessi dagur verði betri en dagurinn í gær, skrítið hvernig allt gerist á einum degi....það var þó eitt ánægjulegt sem gerðist í gær og var það smá léttingur 600gr....:D:Der bara mjög ánægð með það þar sem ég er bæði á túr og hef ég lést mjög hratt að það ætti að vera í lagi að það fari undir kíló einstöku sinnum......og bæði skiptin sem það hefur gerst hjá mér þá hef ég verið á túr.....tilviljun.....hhummmm ætli það...

Mataræðið hefir verið bara mjög fínt, borðaði í gær alvjörlega 100% DDV eins og nánast allta daga og hef ég verið að hafa extrað í góðu jafnvægi...

Ég kíkti á netið í gær og sá kommentin sem ég fékk í gær "takk fyrir þau"....ég sá þau seint um kvöldið og hugsaði með mér.....vá þetta er búið að vera ömulegur dagur en ekki pælt í því að svindla....:)......það var ekkert smá æðislegt að uppgvöta.......


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 14:34:20 / therhs

Átakalegur dagur

Vá hvað er að gerast, það er sko ekki búið að fara vel með mig í dag:cry::cry: Það er búið að taka smá bút úr mínu hjarta í dag...........:cry::cry::cry::cry:

Fundur sem ég fór á fór í háaloft.............

Ég byrjaði á túr í morgun.............

Ég hugsa að ég muni ekki ná mikilli léttingu í þessari viku............:cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry::cry:

Stjörnuspáin passar vel við daginn

LJÓN 23. júlí - 22. ágúst
Himintunglin draga veikleika fram í dagsljósið. Ástin krefst þess og á endanum brestur hjartað. Ljónsmerkið er reyndar tengt hjartanu og veit að það á ekki að óttast. Örin styrkja.

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 11:27:43 / therhs

Stóð mig alveg ágætlega þessa helgi.......

Eldaði svaka máltíð á föstudagskvöld fyrir stórfjölskylduna, kjúlla í ofni, sveppasósu (soð-vatn-sýrður-maisena=sirka 2 extra þar) köld sósa (sýrður-lime-hvítaukur og krydd) rófufranskar, kartöflubátar (ég borðaði þá ekki þar sem ég var búin að skipta út ávöxt í hádeginu), hrásalat og svo var eftirréttur, dr. Oteker búðingur (súkkulaði með perum og jarðaberjum og súkkulaðisósu=1 exra fyrir mig þar) DDV ís um 1 extra þar og svo var ég búin með 1 extra fyrr um daginn, Samtals gera þetta 5 extra í minnsta lagi yfir þennan dag........Tók hins vegar á laugardag og sunnudag vegna þess og borðaði ég 1 extra á laugardag og 1 extra í gær.......mjög ánægð með það, þannig ég ætti að vera bráðum búin að ná þessum extra sléttum yfir vikina ef ég stend mig vel í dag og á morgun....sem ég auðvitað geri;)

Helgin var voða notó.....ætlaði að fara í andlitssnyrtingu á föstudag eða laug en ég pantaði tíma ekki nógu senmma....þannig ég bíð bara fram á næsta föstudag (gjöf frá systir minni þar sem ég er svo dugleg að hjálpa henni- og kalla ég þetta líka smá verðlaun fyrir það að vera dugleg í átakinu mínu). Fór ég þá bara í ræktina í staðin eftir vinnuna á föst og tók ekkert smá á....þyngdi allt um 10 kíló, tók extra mikið af magaæfingum og var 25 í hlaupaskíðatækinu....eða hvað sem þetta heitir. Svo var idolkvöld með fjölskyldunni ásamt matargerðinni hér fyrir ofan.......... Laugardag fór ég með frænku mína í heimsókn til grunnskóla bekkjarsystir mína....það var voða gaman að hitta hana aftur .....hef ætlað að fara lengi og borðaði ég svo hjá systir minni. Sunnudagurinn fór í það að þrífa og ganga frá öllum reikningum frá síðasta ári....ætla að vera snemma búin með skattaskýrsluna þetta árið.....og núna er næstum allt tilbúið :)

Svo í gær taldi ég 26 vikur.....hvenær það væri miðað við að missa eitt kíló á viku og viti menn það ætti að vera komið 8 ágúst....þar sem ég er í viktun á þriðjudögum......en ég á afmæli 7 ágúst........ætli ég nái að gefa mér kjörþyngd í afmælisgjöf......:haha::haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 21:00:38 / therhs

Dagurinn í dag......

............guð hvað ég var ekki að koma mér í vinnugírinn í dag.....eiginlega bara gírinn að vera vakandi......átti erfitt með að vakna, og sást það á mér allan daginn. Fór í búðin, Krónuna ég fer alltaf í Bónus og ég held að það sé bara ódýrar í krónunni......æ ég veit eki allavega varð þetta eitthvernveginn ódýrara heldur en ég borga alltaf.......;)´

Skellti mér svo í leikfimi og var á skíðabrettinu í 20 mín og fattaði svo að ég var með DDV ís í bílnum.......að bráðna......

Matur í dag:

MM: 30gr cheerios, vanillujógúrt, safi

HM: Tortilla með kjúkling og grænmeti, 25gr sýrður rjómi, 3tsk salsasósa og 150gr gulrætur.

K: 1/2 epli og 1/2 pera

KM: Plokkfiskur (120gr fiskur, 70gr laukur, 100gr kartafla, 1 tsk hveiti, 1 dl fjörmjólk og steinselja)mmmmmmmógeðslega gott:D 230gr hrásallat með dressing (15gr olía, smá sítrónusafi, salt og pipar) Appelsín sykurlaust

KK: oteker súkkulaði búðingur með sýrðum rjóma og jarðaberjum....

2 1/2 líter vatn, 2 1/2 extra


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 09:53:24 / therhs

Heimsókn til mömmu og pabba

Í gærkveldu fór ég í heimsókn eftir mat hjá systir minni (minnkun) fór ég til mömmu og pabba, þar sem þau búa rétt hjá og voru amma og afi úr "sveitinni" komin í heimsókn......

Amma og afi hafa alltaf verið upptekin af þyngd og í hvert skipti sem maður kom í heimsókn...(eftir að maður byrjaði að fitna af ráði) fékk maður alltaf eitthver komment frá þeim...þá sérstaklega afa (eiga ekki að vera leiðinleg komment - maður tekur þeim bara misvel) þá hef ég alltaf forðast umræðu um offitu og heilsu á þeirra heimili...þá erfitt sé, núna kom ég í gær og var mamma búin að segja þeim frá árangri mínum og þá fannst þeim ekki sniðugt hversu hratt þetta sé að gerast......ég veit að þau vilja mér bara vel en hvað er málið að vera bæði að afsaka það að vera of þungur og þegar maður tekur sig á að þurfa að afsaka það hversu hratt maður léttist..........ég sagði þeim nú bara að það er kannksi ekki alveg spurning hversu hratt maður léttist það er bara hvort maður læri á leiðinni að halda kjörþyngd þegar maður er búin að ná henni..........

En svona er þetta fjölsyldufólk.....alltaf með áhyggjur:$

Matseðillinn í gær:

MM: létt ab-mjólk, 30gr cheerios, safi.

HM: Tómatsúpa með lauk og fl sýrður rjómi, brauðsneið með camelbert og sultu, nokkrar gulrætur til að ná ú 300gr-in

K: blanda af nokkrum ávöxtum=1

KM: tortilla með kjúkling og grænmeti, sýrðum rjóma og salsasósu..........fékk mér svo 150gr af gulrótum og papriku. 

KK: epli...(held bara besta epli sem ég hef smakkað) og pepsi max

Ég fattaði ekki fyrr en of seint að ég er ekki með fullan fituskamt í dag:( og það fóru 3 extra krossar.......


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 22:13:25 / therhs

Konan er bara að hverfa...:)

Ég fór í viktun áðan og viti menn, ég missti 1,9 kíló:lol:, ég er ekkert smá ánægð með þetta....gera þetta alls 7.7 á 5 vikum..víiiiii:haha::haha::haha::haha: Við systirnar tókum myndir af okkur þegar við byrjuðum átakið og ákváðum við að taka myndir mánaðalega til að sjá mun.....við gerðum það í dag og viti menn það var svaka munur.....enginn smá munur bara á hvað maður lítur betur út þó svo maður er enn alltof þungur...það geislar eitthvernvegin meira af manni.....núna get ég ekki hætt að brosa.:D Við höfum ákveðið að setja inn myndir í næsta mánuði.....þá sérst meira(vonandi)

Matseðillinn í dag:

MM: 1 1/2 safi, 30gr cheerios, 1 1/2 ab-lett mjólk

MK: 1/4 epli

HM: fiskibollur, 60gr brauð, 300gr grænmeti

K: 3/4 ávextir....skipt niður í epli, appelsína og vínber

KM: Nings réttur með ostrusósu með ´hrísgrjónum.....ís með súkkulaðisósu....humm sem sagt aðeins yfir á extranu í dag.....jæja ég verð þá að passa það næstu daga.

KK: jógúrt og appelsína.

Vatn yfir daginn tæpir 3 lítrar.....extra 6.....(smá að halda uppá léttinginn með græðgi).....þetta er svo sem ekki alslæmt....... :$


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 12:16:04 / therhs

Viktunardagurinn mikli

jæja komin þriðjudagur.....spennandi að ská hvað kemur úr viktinni, ég er alveg búin að standa mig alveg ágætlega.....tók mikið extra suma daga en lítið aðra.....kemur á sama stað niður......ég eldaði mjög góðan kjúlla í gær og notaði ég ráð sem hún Kisa skrifaði um á blogginu sínu, að steikja bringu uppúr appelsínusafa......reyndar bætti ég við smá tómatsósu, soya sósu, lauk og papriku....mmmm varð eins og súrsæt sósa og svo auðvitað var ég með hrísgrjón og smá ferskt grænmeti....voða gott........ Svo sagði hún minnkun mér frá fiskrétt sem hún gerði í gær.....sem hljóði mjög vel og mældi hún mikið með honum.......skora á hana að skrifa hann á bloggið sitt. 8)

Matseðill í gær:

MM:1/12 safi, brauð með sultu, 1/2 dolla drykkjarskyr

HM:2 egg með grænmeti.....(eldaði þetta klukkan 1 nóttina áður og varð þetta ógeðsleg.....þannig til að minnka matinn í því tók ég grænmetið úr og borðaði eggin...:S, sem betur fer var ég með auka grænmeti) og eitt brauð

K: smá af allskonar ávöxtum.....mælt sem 1

KM: kjúllarétturinn hér fyrir ofan (veit ég notaði 1 1/2 skamt appelsínusafa.....fyrsta skipið sem það hefur gerst) og hrísgrjón.......

KK: notaði mjólkurskamtinn og afgang af ávaxtaskamti í ís, svo drakk ég 1/2 pepsi max Extra í gær var 2krossar (tómatsósa)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6